mánudagur, október 12, 2009

Hver vill ekki hoppa aftur í tímann?

Heil og sæl! Ef einhver les ennþá blogg...?
Eftir langa blogg-pásu, hef ég ákveðið að skella inn nýrri blogg-fræslu. Persónulega finnst mér blogg vera að detta svolítið af sjónarsviðinu en hverjum finnst ekki yndislegt að vera svolítið í gamaldags? Alla vega svona við og við.
Ég er búin að vera að velta því fyrir mér í svolítinn tíma hvað muni taka við eftir að ég klára B.S-inn í vor. Í raun hef ég ekki hugmynd!?! Mig langar að fara út í masters námið. Í augnablikinu veit ég þó ekki hvort staðan í heiminum stendur með mér í því. Ég hef leitt hugan að því hvort ég eigi að snúa mér að öðru sviði og fá mér B.S gráðu í Búvísindum, fyrst ég er yfirhöfuð á Hvanneyri!? Á ég að fara á Hóla og gerast hreint ótrúlega fær knapi? Á ég að vinna eins og MoFo og safna fullt af peningum? Á ég að þiggja vinnu í Svíðþjóð? Eitt er þó víst, ég ætla mér að fara til Þýskalands! Til Norderney, nánar tiltekið, og hitta Inju, Dirk, Arno og Barböru, Juliu og vonandi alla sem gerðu lífið svo frábært á Norderney! Það er mjög langt síðan ég var á Norderney síðast.. Í raun finnst mér eins og það hafi verið í gær en samt eins og það hafi verið fyrir 20 árum. Það eru samt bara að verða komin þrjú ár síðan ég steig síðast á Þýskajörð, en þykir mér það dágóður tími. Þessi "næstum þrjú ár" hefur mig langað að fara út en það er búið að vera svo hrikalega mikið að gera að ég hef ekki geta leyft mér það. Ég er farin að hlakka nokkuð til þess að fara, þó ég sé ekki búin að festa neina dagsetningu. Í raun er ég ekki búin að ákveða neitt, nema að ég ÆTLA mér að fara, sama hvað!
Ég og Carmen, við erum búnar að liggja í þýskum slögurum í dag, á borð við: "Er gehört zu mir", "Junger Adler"og "Im Wagen vor mir". Þetta lögðum við á okkur því brátt mun vera haldin "Octoberfest" á Kollubar. Við tókum það að okkur að setja saman cd með Octoberfest-Schlager-lögum. Það má segja að þessi stúdía hjá okkur hafi vakið upp minningar hjá mér frá: Jagdwoche Norderney, 2006! Vá hvað það var gaman þá! Kvöldin í der Kornkammer, þar sem spilaðir voru þýskir slagarar, drukkinn bjór, dansað og sungið. Þessar minningar urðu svo til þess að ég fór skoða myndirnar frá veiðivikunni. Hér eru nokkrar vel valdar myndir sem ég hef ákveðið að skella hér með. Enjoy!
Arno og Barbara Junkmann, fyrirverandi vinnuveitendur mínir.
Anne og Gerdt Boll. Þau vildu endilega að ég kynntist syni þeirra, sem var/er einhleypur! Yndislegt fólk!
Marlene Karl, ótrúlega hress Austurísk kona, ég og Inja. Ég á víst enn heimboð til Tirol.
Inja og Eva-Lotta
Malene og ég.
Ahaha... það mætti halda að ég væri ástfangin...
Ég tilbúin í Inselende-jagd, kominn í Pikeur jakka og hvítar buxur!!
Þarna vorum við að bíða eftir blásara hópnum til að geta skálað!
"Hopp, hopp-rinn 'n' Kopp! Nicht lange schnacken, Kopf in' Nacken!"
Tryllt töff hundar!
Und los geht es!
Tilfinningin er ólýsanleg!
Ótrúlega harðir Jagdreitern!
Ég og Gerdt ótrúlega hress eftir veiðina!
Inja komin á Jagdreiter-ballið!
Ég á Jagdreiter-ballinu, eftirrétturinn var ótrúlega góður!

Inja og Stephan Geldsetzer, sponsörinn okkar ;)
(Hvað hét hún aftur) Visser og Svenja Kiefer, Luky Luke og Gadito.
Samlokurnar!
Settningarathöfn.
Ég og Ronja.
Þetta er besta fólk á Norderney!

Þetta voru góðir tímar, ég hugsa að ég væri meira en til að fara aftur í tíman til að upplifa þetta allt saman aftur! Þetta var ótrúleg upplifun, auk þess sem ég kynntist ótrúlega mikið af yndislegu fólki! Á einhver tímavél? Einhver?? Aðal vangaveltan er samt þessi: Á ég að verða svona rauðhærð aftur? Mér finnst það fara mér svo vel! Ef einhver er að lesa þetta, má sá hinn sami kommenta á það hvort málið sé rautt eða ljóst hár. Sá litur sem er valinn oftast hefur vinninginn.
Liebe Grüßchen!

laugardagur, júní 21, 2008

Sumar og sól

Djöfull er orðið langt síðan ég bloggaði síðast! VÁ! Jæja, það hefur svo sem ekkert mjög margt ótrúlegt gerst síðan þá. Veðrið í Borgarfirðinum er búið að vera yndislegt! Sól og blíða, ég held bara að ég sé farin að taka smá lit. 
Ég er bara búin að vera vinna í Leikskólanum á Bifröst og glími þar við tryllt börn á hverjum degi. Ég hef á þessum tíma sem ég hef unnið þarna, verið bitin, klipin og klóruð, skölluð, klóruð, fengið málningapensil í andlitið og það síðasta var mold-drulla-steinar og sandur. Maður getur varla játað annað en að maður sé dálítið uppgefinn eftir hvern vinnudag. Mikið af litlum hlaupandi gríslingum sem þurfa stöðuga athygli, aðstoð og fyrst og fremst einhvern sem er ALLTAF hress og hefur ofan af fyrir þeim. Ég er hins vegar komin í sumarfrí frá leikskólanum núna, og er frí allan júlí. 
En í vikunni sem leið komu þau af Bændadeild 1 til Hvanneyrar og fóru á plöntunámskeið. Þau héldu svo partý í Sóltúninu og kíkti ég aðeins á þau. Þar voru flestir eiturhressir og sumir mikið hressari en það. Símon hvarf mjög snemma, sögur segja að hann hefði horfið á fund ungrar og ljóshærðrar stúlku og þegar ég fór heim rétt upp úr miðnætti hafði ekkert heyrst frá honum. Ég fór heim að sofa. Um 3 leitið vakna svo ég við það að síminn minn hringir.... ég gaf skít í það, setti á silent og bölvaði þeim sem hafði hringt því það væru bara 3 tímar þangað til ég þyrfti að vakna. Ekki löngu seinna vaknaði ég við það að Símon sjálfur var bara mættur inn í herbergið mitt!!! WTF!?! Honum tókst að finna "leyni"-lykilinn og hleypti sér bara sjálfur inn. Þar sem ég var sjúklega þreytt og átti að vakna eftir minna en 3 tíma var ég ekki í stuði til að spjalla og henti aumingja Símoni öfugum út. Þetta fannst mér alveg argasta snilld daginn eftir (þó ekki um nóttina) en hvar ætli Símon hafi endað?? Hvaðan kom hann? Og hvernig datt honum í hug að "brjótast" inn hjá mér og Höllu??? 
En jæja, í næstu viku er plöntugreiningar námskeið hérna á Hvanneyri og verð ég á þessu námskeiði, þar sem ég fer og skríð um túninin hérna í kring og plokka upp saklausar plöntur sem ég á svo að nota í plöntusafn. Alveg ótrúlega skemmtilegt! 
Stefnan er svo tekin á Hellu, á Landsmót hestamanna sem hefst vikuna eftir plöntunámskeiðið. Þar vænti ég þess að hitta kunnugleg andlit og skemmta mér konunglega. 
Jebb, jebb, í kvöld býst ég við því að kíkja aðeins að mannlífið hér á Hvanneyri en lítill fugl kvíslaði því að mér að eitthvað ætti að vera að gerast á barnum í kvöld. Með þessum orðum bið ég ykkur vel að lifa. Njóta sumarsins og ekki birtast inni hjá mér um 3 að nóttu... I will kill you!

fimmtudagur, maí 01, 2008

Hvað er ekki í boði!

Ég skellti mér norður um síðustu helgi til að kíkja á Tekið til kostanna og það var bara virkilega gaman. Mikið af flottum atriðum og skemmtilegt leikrit á milli atriða! Hrúturinn var alveg brilliant! Bara að ég ætti mynd af honum!

En núna hafa tekið við erfiðari tímar, verkefnaskil og prófatörn. Við skiluðum leikskólalóðinni af okkur á miðvikudaginn, eftir mikið stress og andvökunætur. Kynningin mín var fyrir hádegi svo ég og Embla fórum heim í hádeginu, fengum okkur pylsu og ég var svo ótrúlega góð á því að ég bara steinsofnaði í sófanum og svaf til klukkan 21:30.... Ég hélt ég hefði dottið út í svona 2 tíma, en nei ég náði svona löngum og helvíti góðum svefni! Spennufall stóð svo yfir í nokkra daga, eða þangað til ég áttaði mig á því að ekki væri tími til að slóra því vistfræðiprófið væri á næsta leiti. Hellingur af glósum til að lesa.

Á föstudaginn var Vorfagnaður Nemendafélagsins og við Eyrún skelltum okkur niður í skjólbelti með kjöt og sósu í einni og fullt af bjór í hinni. Grilluðum við þar í góðu yfirlæti og í boði var hoppukastali fyrir þá sem hafa gaman af því að hoppa. Eftir þessa grillveislu var svo haldið á Barinn þar sem Hvanndalsbræður spiluðu fyrir dansi. Þeir voru mjög góðir og Eyrún sagðist hafa eignast nýja uppáhalds hljómsveit, enda voru þeir með klúra brandara á milli laga! Þetta var nú heldur betur viðburðarríkt kvöld, eftir að Hvanndalsbræður höfðu lokið sínu prógrammi dróg Eyrún mig út og uppí einhvern bíl og ég vissi ekki hvaðan á mig stóð veðrið! Leiðinni var heitið á Hest (bær mjög nálægt Hvanneyri), þar sem bílstjórinn þurfti að skila einhverri ritgerð á staðinn. Þetta endaði þó með því að við fórum í fjárhúsið að skoða lömbin en þar voru fyrir Einar Kári og Lilja Rún, að fylgjast með rollunum og lömbunum. Við hittum fullt af sætum lömbum og Eyrún var vægast sagt í himnaríki.

Eftir um klukkutíma stopp var svo brunað aftur á barinn og tjúttað til lokunnar. Mér var snúið hressilega á dansgólfinu enda nóg af góðum dansherrum í skólanum. Eftir barinn var svo haldið í eftirpartý á vistina, þar sem við spiluðum borðtennis... Þegar stemmingin á vistinni fór að detta niður, þá skelltum við okkur í eftir-eftirpartý í Árgarð til Siggu systur. Það var þó stutt gaman því allt í einu áttaði ég mig á því að klukkan var farinn að nálgast 8 og drattaðist ég þá heim, með svolítið djammviskubit, enda að byja prófalestur. Skamm, skamm.
Þetta var þó ótrúlega gott djamm og sé ég sko ekki eftir ferðinni á Hest!

föstudagur, apríl 11, 2008

Ástan

  • Hér
  • finnið þið bestu mynd af mér sem hefur verið tekin!

    miðvikudagur, apríl 09, 2008

    What do kids want?

    "Móta hugmyndafræðina... konceptið... mótun lands... koncept teikning... skissur.. grunnteikning..." þylur kennarinn upp. Við hönnun leikskólalóða er margt sem þarf að hafa í huga. Næsta stóra verkefnið okkar í UMSK II er hönnun á nýju leikskólalóðinni hér á Hvanneyri. Þetta er mjög krefjandi verkefni og á eflaust eftir að vera mjög skemmtilegt. En spurningin er: What do kids want?
    -Rólur
    -Kastala
    -Gróður
    -Drullu
    -Klifursvæði
    -Hóla
    -Rennibrautir... eitthvað svona:


    Gærdagurinn var viðburðaríkur. Dagurinn byrjaði á áhugaverðum fyrirlestri hjá Hellu um muninn á teikningum(blýants vs máluðum), núans, contrast og notkun efnis. Þegar tíminn var búinn var brunað uppá Miðfossa því alltaf á þrijudögum er rekstur, þar sem allir mega vera með. Við rákum hrossastóðið fá Miðfossum og út á Hvítarvelli, en á bílum og það gekk bara mjög vel. Þegar á áfangastað var komið leyfðum við hrossunum aðeins að ná sér niður en svo fórum við þrjár galvaskar og náðum í okkar reiðhesta (sem voru í stóðinu). Það var ekkert mál að ná Blesa hennar Emblu og Goði hennar Kollu var einnig mjög samvinnuþýður en hann Brjánn... hann lét dálítið eltast við sig, en hann gaf sig nú svo á endanum. En á leiðinni úr stóðinu og að bílnum þar sem hnakkarnir biðu, elti tryppið hennar Hildar og Carmen sem var að passa að lausu hrossin kæmu ekki með fór að merinni með einhverjum handaveifingum og groddaskap sem varð til þess að hún fældi hestinn hjá mér. Hann auðvita reif sig lausan úr höndunum á mér og hljóp til baka með lafandi tauminn. Mér var ekki skemmt við þetta uppátæki hjá Carmen. Við fórum svo á eftir hestinum og náðum honum aftur og svo skelltum við okkur á bak og riðum á undan stóðinu heim. En á heimleiðinni gekk Brjánn sem aldrei fyrr, lyfti betur en venjulega og var hinn skemmtilegasti. Þetta var mjög skemmtileg ferð en ég er svolítið aum í hendinni eftir rykkinn, á erfitt með að kreppa fingur og fæ smá verk niður í framhandlegginn. Eftir hesthúsið drifum við okkur svo í matarboð hjá Hildi en þær Kolla elduðu alveg ótrúlega góðan mat, nautalund, sætarkartöflur, piparsósu, salat, ís , jarðaber og rauðvín!!

    sunnudagur, apríl 06, 2008

    Fluttningur og drag...

    Ég hef ekki verið dugleg við að tjá mig undanfarið. Enda er ég búin að standa í fluttningum og veseni. Við Embla erum nú fluttar til Kollu í Skólaflötina. Við erum því lausar við Kúsíkú og hans hætti. Íbúðin er í mikið betra standi en Hlégarður og við erum hinar kátustu!
    Í gær var hið víðfræga grímuball Lbhí-nema og var það haldið í félagsheimilinu Brún. Við stúlkur fengum þá flugu í hausinn að klæða okkur upp sem dagdrottningar. Við lögðum mikla vinnu í búninga og vorum hinar glæsilegustu dragdrottningar, ég dró fram dimmiteringarbúninginn... carnivalbúninginn. Carmen leit sérstaklega mikið út eins og strákur í kvengervi og var nánast óþekkjanleg (reyndar ásamt mörgum öðrum). Mér tókst að vinna búningaverðlaun s.s. fyrir besta karlmannsbúninginn (af því ég var dragdrottning) en Lilja (sem var sturta... besta hugmynd í heimi!) hún vann fyrir besta kvenmannsbúninginn. Bendi á að myndir frá ballinu er að finna á fésbókinni. Eyrún var einnig mjög góð, hún þurfti ekki annað en að setja upp hárkollu og það fór ekki á milli mála að hún var Cher! Þetta var alveg stór skemmtilegt ball, ég hef sjaldan skemmt mér jafnvel ég skemmti mér meira að segja svo vel að ég er með harðsperrur eftir allan dansinn en ég er líka með kúlu á enninu... En nú erum ég og kúlan orðnar þreyttar á þessu bloggi í bili og biðjum ykkur vel að lifa!

    Á döfinni:
    byggja herbergi á enninu fyrir kúluna á enninu...




    Hér eru nokkrar myndir frá gærkveldinu! Njótið!
    Ég a.k.a. Africa

    Carmen og Hildur

    Partý í Árgarði

    föstudagur, mars 28, 2008

    No matter what

    Heil og sæl!
    Jæja, þá eru páskarnir búnir. Ég hámaði í mig páska egg (með smá hjálp) og borðaði fínan mat. Það sem stendur uppúr páskunum er maturinn hjá Höllu á annan í páskum, þar sem mér tókst eftir mjööög langan tíma að leysa gestaþrautina, ég og Halla frænka erum þær einu sem höfum leyst þrautina! Húrra fyrir okkur!
    Nú er skólinn hafinn að nýju og sit ég nú myrkvanna á milli og vatnslita. Öll verkefnin í sjónmenntum II ganga út á það að vatnslita, mér líður alltaf eins og frægum listmálara þegar ég tek upp pensilinn... ekki að ég sé góð að vatnslita, reyndar finnst mér alltaf mjög erfitt að lita myndirnar mínar, því ég tek litinn ekki tilbaka ef eitthvað fer úrskeiðis!
    Tamningar ganga vel og hef ég verið að velta því fyrir mér að festa kaup á klárnum, sem ég get fengið á mjög góðu verði. Otursonurinn er allur annar en hann var í byrjun.
    Við Embla flytjum bráðum til Kollu, aðeins nokkrir dagar í þetta. Við vorum að rifja upp boyböndin áðan... Backstreet boys, Westlife, Boyzone... vá hvað það var fyndið að hlusta á þessi lög!
    "No matter what" með Boyzone stóð uppúr! Hver man ekki eftir byrjuninni!?! Tchatjatja.. tchatjaja... no matter what they tell you.
    Á döfinni er Grímuball LBHÍ, við erum búnar að ákveða búninga og ég er orðin alveg rosalega spennt fyrir þessu balli!
    Það hefur samt ekki margt drifið á daga mína, horfði á The Queen um daginn. Helen Mirren fer á kostum í myndinni. Held ég hafi aldrei spáð meira í Englandsdrottningu.. humm, jákvætt???? En jæja... svona er nú það.
    Hér er "NO Matter What"