Geimvera með munnræpu...
Ég hef uppgötvað hæfileika minn til að tala!
Ég tala og ég tala...
Ég get talað endalaust. Hvort það er gott eða slæmt er mjög erfitt að segja til um. Stundum þegar hlutirnir þurfa að ganga hratt fangar eitthvað fólk mig og ég enda með því að opna munninn og þá bara fossar og fossar út... og ég á erfitt með að stoppa þetta flóð. Á endanum enda þessi ósköp þannig að Inja rífur mig með valdi frá þessu fólki og sparkar aðeins í rassinn á mér. Stundum fer ég þá að grenja en oftast finn ég bara annað fólk til að hella mér yfir. Það er búið að opna einhverja gátt í mér... Ég get blaðrað og blaðrað en þó er ég alveg á kostum með fólki sem er opið á móti. En spurningin er bara: Er þetta vandamál? Að vissu leiti er þetta bara gott. Ég er alla vega búin að vinna mér inn mjög gott orð sem ótrúlega opin, nettur og frábær starfskraftur... En satt að segja er ég orðin svolítið hrædd um það að lítil geimvera hafi tekið sér bólfestu í líkama mínum og fundið stjórnkerfið í líkama mínum og að þessi geimvera sé með munnræpu og noti mig sem einskonar málpípu. Hver veit nema hún sé að reyna að koma einhverjum leynilegum skilaboðum til skila eða jafnvel að reyna að heilaþvo jarðarbúa í gegnum mig.
Hvernig hún komst inn í líkama minn er þó enn ráðgáta.
P.S
pæling dagsins... af hverju er ég svo ótrúlega vitlaus að eyða frídeginum mínum í það að stunda íþróttir á meðan aðrir slappa einfaldlega af??? Er þetta eitthvað masó-dæmi?

<< Home