miðvikudagur, maí 10, 2006

Sumarkvef

Í dag er ég búin að vera alveg ótrúlega þreytt.. Eyddi ég neflilega stórum hluta síðustu nætur vakandi. Og reyndar er ég búin að þurfa að vakna á hverri nóttu og hefur það orsakað lítinn svefn og hef ég legið mikið andvaka. Þið kunnið að spyrja ykkur hvað ég hafi verið að gera.. hvort ég hafi verið að djamma og djúsa!! Ég skal sko segja ykkur hvað ég var að gera.
Síðustu nótt var okkur sparkað fram úr vegna þess að við þurftum að hlaupa út í hesthús og taka á móti folöldum en hinar næturnar þurfti ég að vakna til að vakta þessar tvær sömu hryssur sem áttu folöldin. Já, það fæddust tvö alveg ótrúlega sæt folöld og þurftum við að taka á móti þeim. Reyndar áttu þau ekki að fæðast á sama tíma, annað átti að fæðast 10 dögum seinna en það ákvað að kíkja í heiminn núna. Þetta var alveg ótrúleg upplifun, við hlupum eins og brjáluð út í hesthús og það fyrsta vem blasti við okkur var önnur hryssan og svo kíkti ég á hina hryssuna, hljóp til Barböru og sagði: "Folöldin koma bæði í nótt"... svona klukkutíma seinna voru tvö lítil folöld komin í heiminn. Hérna eru nokkrar myndir af þeim litlu:



Það er reyndar búið að vera alveg ótrúlega margt í gangi undanfarið... 45 ára afmæli Reitschule Junkmann... Gadito partý... 1. maí var fagnað hérna með mjög undarlegum hætti þar að segja með því að stela svo kölluðum maítrjám... Surf námskeiðið mitt er búið... grill á ströndinni.... Þessi tími hérna er búinn að vera alveg milljón! Ég trúi því ekki að ég sé á leiðinni heim bráðum! Þessi tími er búinn að líða svo ótrúlega hratt!!! Hver hefði trúað því að 8 mánuðir gætu liðið svona hratt? Ég er búin að vera hérna svo lengi en samt finnst mér ég eiginlega bara nýkomin. En það er einnig eiginlega synd að ég skuli vera að fara þegar besti tíminn hérna á eyjunni er að byrja. Öll gleðin og hátíðirnar sem eiga eftir að vera í gangi hérna Hér eru nokkrar myndir frá atburðum líðandi stundar:









En jújú, hér eru hitinn og sólin komin og sumarið að byrja.... og ég er komin með hálsbólgu, stíflað nef, rauð augu og höfuðverk. Whiskey-rödd og lekandi nef. Þar sem ástandið er svona er ég að hugsa um að segja þetta gott í bili og horfa á myndina 'Down with Love'... ekki það að hugarfarið sé svo hjá mér... bara góð mynd.

Ich wunsch euch was!