þriðjudagur, janúar 29, 2008

Eftirköst..

Heldur skárri dagur í dag en í gær... 1 klukkutími og 15 mín af vistfræði, þriðjudagar er svo SWEET, skóli frá 9:00 til 10:15! Embla fauk ekki af Hrekkju-Bleik og ég gat stundað reiðmennsku án þess að vera á öfugum túr... (nýyrði yfir blóðnasir, Rán á heiðurinn) Rosalega mikið að gera allt í einu, verkefni ofan á verkefni, veit ekki hvar þetta endar. Svo bara rétt áðan, sat ég inni hjá meistaranum, hún var að redda sér nýju hrossi og allt í einu líður mér eins og það sé fluga að fara upp í nefið á mér og ég fríka pínu og gríp eitthvað fyrir nösina með þeim afleyðingum að sprauta blóði yfir allt gólfið hjá Emblu  og meistarinn kallaði mig snúð... engin fluga, bara blóð!!! NEII!!!! Ég skil hvorki upp né niður. Kannki eru þetta örlögin... að vera alltaf á túr að ofan, en að fá blóðnasir fjóru sinnum á 2 dögum er dáldið brútal. Ég hélt ég væri með kjarnorku-nef, sem þyldi allt, miðað við allt hnjaskið sem það hefur lent í! Hvílík vonbrigði!

En jæja, tékkið á þessum: