föstudagur, mars 28, 2008

No matter what

Heil og sæl!
Jæja, þá eru páskarnir búnir. Ég hámaði í mig páska egg (með smá hjálp) og borðaði fínan mat. Það sem stendur uppúr páskunum er maturinn hjá Höllu á annan í páskum, þar sem mér tókst eftir mjööög langan tíma að leysa gestaþrautina, ég og Halla frænka erum þær einu sem höfum leyst þrautina! Húrra fyrir okkur!
Nú er skólinn hafinn að nýju og sit ég nú myrkvanna á milli og vatnslita. Öll verkefnin í sjónmenntum II ganga út á það að vatnslita, mér líður alltaf eins og frægum listmálara þegar ég tek upp pensilinn... ekki að ég sé góð að vatnslita, reyndar finnst mér alltaf mjög erfitt að lita myndirnar mínar, því ég tek litinn ekki tilbaka ef eitthvað fer úrskeiðis!
Tamningar ganga vel og hef ég verið að velta því fyrir mér að festa kaup á klárnum, sem ég get fengið á mjög góðu verði. Otursonurinn er allur annar en hann var í byrjun.
Við Embla flytjum bráðum til Kollu, aðeins nokkrir dagar í þetta. Við vorum að rifja upp boyböndin áðan... Backstreet boys, Westlife, Boyzone... vá hvað það var fyndið að hlusta á þessi lög!
"No matter what" með Boyzone stóð uppúr! Hver man ekki eftir byrjuninni!?! Tchatjatja.. tchatjaja... no matter what they tell you.
Á döfinni er Grímuball LBHÍ, við erum búnar að ákveða búninga og ég er orðin alveg rosalega spennt fyrir þessu balli!
Það hefur samt ekki margt drifið á daga mína, horfði á The Queen um daginn. Helen Mirren fer á kostum í myndinni. Held ég hafi aldrei spáð meira í Englandsdrottningu.. humm, jákvætt???? En jæja... svona er nú það.
Hér er "NO Matter What"