laugardagur, júní 21, 2008

Sumar og sól

Djöfull er orðið langt síðan ég bloggaði síðast! VÁ! Jæja, það hefur svo sem ekkert mjög margt ótrúlegt gerst síðan þá. Veðrið í Borgarfirðinum er búið að vera yndislegt! Sól og blíða, ég held bara að ég sé farin að taka smá lit. 
Ég er bara búin að vera vinna í Leikskólanum á Bifröst og glími þar við tryllt börn á hverjum degi. Ég hef á þessum tíma sem ég hef unnið þarna, verið bitin, klipin og klóruð, skölluð, klóruð, fengið málningapensil í andlitið og það síðasta var mold-drulla-steinar og sandur. Maður getur varla játað annað en að maður sé dálítið uppgefinn eftir hvern vinnudag. Mikið af litlum hlaupandi gríslingum sem þurfa stöðuga athygli, aðstoð og fyrst og fremst einhvern sem er ALLTAF hress og hefur ofan af fyrir þeim. Ég er hins vegar komin í sumarfrí frá leikskólanum núna, og er frí allan júlí. 
En í vikunni sem leið komu þau af Bændadeild 1 til Hvanneyrar og fóru á plöntunámskeið. Þau héldu svo partý í Sóltúninu og kíkti ég aðeins á þau. Þar voru flestir eiturhressir og sumir mikið hressari en það. Símon hvarf mjög snemma, sögur segja að hann hefði horfið á fund ungrar og ljóshærðrar stúlku og þegar ég fór heim rétt upp úr miðnætti hafði ekkert heyrst frá honum. Ég fór heim að sofa. Um 3 leitið vakna svo ég við það að síminn minn hringir.... ég gaf skít í það, setti á silent og bölvaði þeim sem hafði hringt því það væru bara 3 tímar þangað til ég þyrfti að vakna. Ekki löngu seinna vaknaði ég við það að Símon sjálfur var bara mættur inn í herbergið mitt!!! WTF!?! Honum tókst að finna "leyni"-lykilinn og hleypti sér bara sjálfur inn. Þar sem ég var sjúklega þreytt og átti að vakna eftir minna en 3 tíma var ég ekki í stuði til að spjalla og henti aumingja Símoni öfugum út. Þetta fannst mér alveg argasta snilld daginn eftir (þó ekki um nóttina) en hvar ætli Símon hafi endað?? Hvaðan kom hann? Og hvernig datt honum í hug að "brjótast" inn hjá mér og Höllu??? 
En jæja, í næstu viku er plöntugreiningar námskeið hérna á Hvanneyri og verð ég á þessu námskeiði, þar sem ég fer og skríð um túninin hérna í kring og plokka upp saklausar plöntur sem ég á svo að nota í plöntusafn. Alveg ótrúlega skemmtilegt! 
Stefnan er svo tekin á Hellu, á Landsmót hestamanna sem hefst vikuna eftir plöntunámskeiðið. Þar vænti ég þess að hitta kunnugleg andlit og skemmta mér konunglega. 
Jebb, jebb, í kvöld býst ég við því að kíkja aðeins að mannlífið hér á Hvanneyri en lítill fugl kvíslaði því að mér að eitthvað ætti að vera að gerast á barnum í kvöld. Með þessum orðum bið ég ykkur vel að lifa. Njóta sumarsins og ekki birtast inni hjá mér um 3 að nóttu... I will kill you!